Grunnskóli Akrahrepps
Fréttabréf ] Upplýsingar ] Verkefni nemenda ] Myndir ]

Samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar Akrahrepps 26. maí 2006 verður Akraskóli ekki starfræktur veturinn 2006 - 2007. Ennfremur segir í fundargerð hreppsnefndar: 

Í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin varðandi skólann er það ákvörðun heppsnefndar að ekki verði framhald á skólahaldi í Akraskóla, a.m.k. ekki næsta vetur.  Börn úr Akrahreppi ganga því í Varmahlíðarskóla næsta vetur. 

Að lokum vill heppsnefnd tilfæra hér orð úr Njálssögu:  Mikill harmr er at oss kveðinn, er vér skulum svá mikla ógæfu saman eiga

 


Fréttir
29. maí
Danssýning Loga og nemenda - Loksins, loksins!  Hér eru myndir frá danssýningunni 12. maí.
19. maí
Skólaferðalagið Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir!- Í dag fóru allir nemendur og nokkrir starfsmenn skólans í dagsferðalag.  Farið var fyrir Skagann með viðkomu í Kálfshamarsvík, þar sem fjörur voru kembdar eftir alls kyns gersemum.  Næst var komið við á Blönduósi og  hádegismatur snæddur.  Eftir hamborgara og franskar var haldið aftur í Skagafjörðinn, til Steinstaða í sund.  Að sjálfsögðu skelltu nemendur sér á leiksvæði staðarins eftir sprettinn, en var svo smalað að nýju upp í rútu á óvæntan stað.  Lísa á Varmalæk bauð öllum heim til sín þar sem þær Hulda ráðskona höfðu útbúið veislu með í dýrindis kaffi, kakó, tertum og ís og mætti það starfsfólk sem ekki var með í ferðinni þangað. Allir ultu út í rútu  að heimsókn lokinni.  Það er samdóma álit ferðafélaga að þetta væri vel heppnaður og skemmtilegur dagur. 
 
Skólaslit - Skólaslit Akraskóla verða miðvikudagskvöldið 24. maí  kl. 20:30. Verða þá nemendum afhentar námsmatsbækur og verk þeirra eftir skólaveturinn.

18. maí
Myndir frá skólalífinu - Safnast hafa ýmsar myndir sem ekki lenda á sér myndasíðum. Hér er samtíningur sem samanstendur aðallega af kennslustundum, ýmsum heimsóknum og listaverkum nemenda.

Heiðarlandsferð - á þriðjudaginn s.l. fóru nemendur og starfsfólk skólans í árlega ferð fram í Heiðarland.  Þar voru gróðursettar 100 birkiplöntur frá Yrkjusjóði og 100 lerkiplöntur sem Akrahreppur gaf.


9. maí
Danssýning - á föstudaginn 12. maí kl. 13:00 munu nemendur skólans og Logi danskennari halda danssýningu. Allir eru velkomnir til að sjá afrakstur danskennslunnar í vetur.

8. apríl
GLEÐILEGA PÁSKA! Sjáumst aftur miðvikudaginn 19. apríl.

Hæfileikakeppni Akraskóla - Síðastliðinn þriðjudag héldu nemendur hæfileikakeppni sín á milli.   Atriði voru afar fjölbreytt, söngatriði voru mörg en fimleikar voru líka sýndir, töfrabrögð sem og afar liðugur putti.  Þema kvöldsins var Júróvisjón, sem sjá mátti á fötum þó nokkurra nemenda og heyra mátti á lagavali.   Nemendur máttu koma alls þrisvar fram og nýttu allmargir sér það. Atriðin urðu alls 15. Að venju var það sérlegur ljósmyndari skólans, Stefán Ingi, sem myndaði þessa frábæru skemmtun.

Könnun vegna sjálfsmats nemenda - Í febrúar stóð skólinn fyrir könnun meðal foreldra um ýmisleg atriði í skólastarfi vetrarins.  Vildum við vita hvernig vikuáætlun nýttist foreldrum og  hvernig þeim og nemendum fannst sjálfsmat nemenda sem prófað var í vetur.  Einnig vildum við skoða hversu mikil notkun væri á þessari heimasíðu. Hér eru niðurstöður könnunarinnar teknar saman.

15. mars
Lestrarátak - Frá 9. janúar til 28. febrúar var lestrarátak hjá eldri deild. Takmarkið var að  nemendur læsu minnst 700 blaðsíður á tímabilinu - ef því takmarki væri náð yrði óvæntur glaðningur í byrjun mars.  Allir nemendur fóru langt fram úr 700 blaðsíðum, allir lásu yfir 1000 blaðsíður og flestar urðu þær yfir 1.800 blaðsíður.  Í dag var svo haldið upp þennan frábæra árangur með að horfa á  skemmtilega bíómynd, borða góðan mat, tafli ofl. Til hamingju með þetta góða lestrarátak, eldri deild!

1. mars
Öskudagsballið góða - Búningarnir voru af öllu mögulegu tagi og sama má segja um súkkulaðikökurnar!  Hér eru myndir frá deginum í dag.

22. febrúar
ÖSKUDAGSBALL!
Að venju verður öskudagsball í skólanum á öskudaginn 1. mars.  Það hefst kl. 14:00.  Skemmtiatriði og kaffi eru í umsjón foreldrafélagsins og skólans.  Fjölmennum og gerum okkur glaðan dag!

22. febrúar
VETRARFRÍ - Við minnum á vetrarfrí  skólans sem er framundan.  Það verður dagana 1., 2. og 3. mars nk.

22. febrúar
ATHUGIÐ! ATHUGIÐ!
Föstudaginn 24. feb. lýkur kennslu fyrr en venjulega vegna námskeiðs kennara.  Skólabílar aka því heim kl. 12:15.


Allir á skíði!!
31. janúar
Skíðaferð! - Í dag fylltu nemendur og nokkrar starfskonur bláu rútuna hans Valda og skelltu sér á skíði á Tindastól.  Þvílík ferð!  Allir skemmtu sér stórkostlega í yndislegu veðri og hefðu flestir ef ekki allir viljað vera miklu lengur.  Viggó skíðabrekkustjóri með meiru var á svæðinu og gerði allt í sínu valdi til að gera frábæra upplifun enn betri.  Brá hann sér í gerfi skíðakennara og kenndi krökkum  að skíða eins og pizzusneið (ætli nokkur krakki viti lengur hvað „plógurinn” sé)?  Hér eru myndir frá deginum.

23. janúar
Þorrablót Akraskóla - s.l. föstudag var haldið hið árlega þorrablót skólans. Eins og vanalega tókst það ljómandi vel, bæði voru fín skemmtiatriði og maturinn ljúffengur. Hér eru nokkrar myndir sem Stefán Ingi á Höskuldsstöðum tók fyrir sinn gamla skóla. 

16. janúarSkólinn nýbyrjaður, nemendur brúnir og sælir.
Myndir úr skólalífinu - hér er samtíningur af myndum frá september síðastliðnum til desember. Allar aðrar myndir eiga að finnast á síðunni Myndir.

Frá þorrablóti skólans í fyrra9. janúar
Þorrablót - Hið árlega þorrablót Akraskóla verður að þessu sinni föstudaginn 20. janúar nk. og hefst kl. 12:15 stundvíslega. Nemendur mega bjóða með sér pabba og mömmu, systkinum, afa og ömmu. Einnig er starfsfólki skólans, skólanefnd og sveitarstjórn boðið á blótið. Við viljum biðja foreldra um að láta vita um fjölda gesta frá hverju heimili með því að senda orð með nemendum eða hringja í skólann á föstudaginn 13. janúar.

Jólamyndir! - Litlu jólin tókust ljómandi vel, með hefðbundnum dansi í kringum jólatréð, hátíðismat hjá Huldu og í lokin skemmtun fyrir foreldra, afa og ömmur og systkini. Hér eru svo myndir frá jólaballi Kvenfélags Akrahrepps sem var haldið 28. desember.

Loksins loksins, og þó fyrr hefði verið!  Eftir tveggja vikna ólag er heimasíðan komin í lag.

16. desember
Kennsla hefst aftur að afloknu jólafríi miðvikudaginn 4. janúar 2006.

Litlu jólin - þriðjudaginn 20. desember verðu Litlu jólin haldin hátíðleg hér í skóla.  Nemendur eiga að mæta kl. 11:00 fyrir hádegi í sínu fínasta pússi (skólabílarnir keyra).  Þá ætlum við að ganga kringum jólatréð og syngja jólalög.  Að afloknum góðum jóla-hádegisverði,  kl. 13:00, eru foreldrar og systkini velkomin í heimsókn til að horfa á nokkur skemmtiatriði sem nemendur hafa undirbúið.  Að lokum er boðið upp á kaffi og smákökur áður en haldið er heim í jólafrí.  Gleðileg jól!

16. desember
Laufabrauðsbakstur - síðastliðinn þriðjudag lagðist allur skólinn í laufabrauðsgerð ásamt nokkrum aðstoðarmæðrum. Hér eru myndir af herlegheitunum

Eldra efni.....

Uppskriftir frá kennurum og  nemendum, bæði íslenskar og alþjóðlegar.

Krækjur, aðallega tengdar stjörnufræði

 

1999. Íris Olga Lúðvíksdóttir, iol@simnet.is

Hit Counter